Vesturfold, Reykjavík (Grafarvogur)

  • Tegund:
    Einbýli
  • Stærð:
    249
  • Fasteignamat:
    61.100.000
  • Brunabótamat:
    61.500.000
  • Áhvílandi:
    0
  • Herbergi:
    8
  • Svefnherbergi:
    5
  • Baðherbergi:
    2
  • Stofur:
    3
  • Þvottahús:
  • Bílskúr:
    1

Verð: 74.900.000 kr

Vesturfold, Reykjavík (Grafarvogur)

VESTURFOLD 27    Sölvi s. 618-0064 og Höfuðborg fasteignamiðlun kynna:

Einstaklega glæsilegt og vel staðsett 249 fm einbýlishús með 46 fm bílskúr á einum besta útsýnisstað í Grafarvogi.  



  • Óhindrað útsýni yfir sundin bláSnæfellsjökul og í Esjuna. 

  • 5 svefnherbergi, vandaðar innréttingar, 2 baðherbergi.

  • Möguleiki á að útbúa sér 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.

  • 1000 fm vel gróinn lóð með holtagrjóti og berjalyngi.         


Aðalhæð skiptist í:  Anddyri, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, hol, stofu og borðstofu, eldhús með þvottahúsi inn af og innangengt úr þvottahúsi í bílskúr. Steyptur breiður stigi er úr holi niður á neðri hæð.  Neðri hæð skiptist í:  þrjú rúmgóð barnaherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol með hurð út í garð.


Nánari Lýsing
Aðalhæð:   Anddyri með miklum skápum úr maghogny. Herbergi með skápum og flísum á gólfi. Baðherbergi með vönduðum flísum, rúmri sturtuaðstöðu, góðri innréttingu, hita í gólfi og glugga. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og útgengi á svalir í suð-vestur.  Stofa og borðstofa með uppteknum loftum klædd peruvið og arni, svalir út af stofu í suð- vestur og er einstakt útsýni úr stofu og borðstofu yfir Snæfellsjökul og í Esjuna.  Eldhús er stórt með mikillri og vandaðri innréttingu úr hlyn og granít á borðplötum, rúmgóður borðkrókur með góðu útsýni. Þvottahús er inn af eldhúsi með hvítri innréttingu og hurð út á svalir og innangengt í tvöfaldan bílskúr með háum innkeyrsluhurðum og góðu millilofti yfir bílskúr og hluta af húsi. Úr holi efri hæðar er breiður teppalagður stigi með vönduðu handriði úr ryðfríu stáli niður á neðri hæð.   Gólfefni efri hæðar: Flísar á stofum og holi, parket á eldhúsgólfi og hjónaherbergi. 
Innréttingar: Fataskápar og innihurðar eru mjög vandaðar úr hvíttuðum hlyn.
Neðri hæð:
Sjónvarpshol neðri hæðar er með fataskáp og hurð út í garð, teppi eru á holi.Herbergin eru þrjú öll með fataskápum og Pergo parketi á gólfum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, góðri innréttingu og glugga.  

Möguleiki er að útbúa 3ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngang. 

Niðurstaða: Mjög snyrtileg og vel umgengin eign á góðum útsýnisstað þar sem kvöldsólin getur verið stórfengleg og einstakt útsýni yfir sundin blá og á Snæfellsjökul.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af Kaupsamningi - 0.4% af heildarfasteignamat.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 1,5% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.-kr 2.000 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Allar nánari upplýsingar veitir Sölvi í síma 618-0064 eða [email protected]  og/eða Kristján Ólafsson, hrl., löggiltur fasteignasali, í síma 414-4488. 






Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd